Everton á Íslandi

 
 
Microsoft Software download

FA bikar 5. umferð - uppfærsla

Skrifað af: Brekmundur
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 12:02

Blackpool sigraði Sheffield Wednesday á útivelli 0-3 í fjórðu umferð FA bikarsins í gær og voru öll mörkin nokkuð glæsileg. Það verður því Blackpool sem mætir okkur á Goodison Park í 16. liða úrslitum (5. umferðinni) í FA bikarnum. Hægt er að sjá mörkin og færin í leiknum í gær hér. Blackpool er okkur að góðu kunnugt en við unnum þá heima 5-3 í Úrvalsdeildinni í fyrra og gerðum jafntefli úti.

Millwall vann jafnframt Southampton 2-3 í gær en Sunderland og Middlesborough mætast í kvöld til að slást um hver fær að mæta Arsenal. Drátturinn lítur því svona út (lið og staða innan deildar í sviga).

Norwich (1:9) mætir Leicester (2:13)
Stevenage (3:6) mætir Tottenham (1:3)
Crawley (4:1) mætir Stoke (1:12)
Chelsea (1:4) mætir Birmingham (2:3)
Everton (1:11) mætir Blackpool (2:5)
Millwall (2:21) mætir Bolton (1:18)
Sunderland (1:8) eða Middlesborough (2:6) mætir Arsenal (1:6)
Liverpool (1:7) mætir Brighton (2:10)

Share
 

Wigan - Everton 1-1

Skrifað af: Brekmundur
Sunnudagur, 05. febrúar 2012 13:34

Aðstæður voru ekki eins og best var á kosið vegna hagléls og rigningu og völlurinn í slæmu ásigkomulagi. Uppstillingin fyrir Wigan leikinn kom lítillega á óvart en Distin kom aftur í miðvörðinn og Hibbert því færður á hægri kantinn fyrir Neville sem fór á bekkinn (Cahill fyrirliði). Mestu athygli vakti þó að Pienaar byrjaði inn á á vinstri væng í stað Drenthe/Gueye. Uppstillingin því: Howard, Baines, Heitinga, Distin, Hibbert, Pienaar, Fellaini, Gibson, Donovan, Cahill, Stracqualursi.

Eftir frammistöðu liðsins í síðustu tveimur leikjum var tilefni til bjartsýni enda höfðum við ekki tapað fjórum leikjum í röð, komist í 16 liða úrslit í FA bikarnum og lagt liðið í efsta sæti í deildinni. Leikurinn í gær gegn Wigan olli þó nokkrum vonbrigðum en, eins og síðast þegar við lékum gegn Wigan, þá virtumst við detta niður á lægra plan og ekki ná upp sömu stemmingu í liðinu og til dæmis á móti City. Þetta var líka þriðji leikurinn á átta dögum (og lakasti andstæðingurinn), sem hefur haft sitt að segja.

Fyrir vikið var fátt um færi og fyrri hálfleikur og eiginlega stór hluti af seinni voru hálf leiðinlegir, satt best að segja. Wigan átti í mestu erfiðleikum með að koma sér í færi, sendingar að misfarast hjá þeim, bæði út af vellinum eða á okkar menn. Við mun líklegri til að skora allan leikinn og hefðum átt að nýta okkur yfirburðina.

Eina markverða sem gerðist fyrsta korterið var þegar Stracqualursi átti fyrsta færi leiksins eftir fínt samspil gegnum miðju og vörn Wigan en skotið slakt og beint á markvörðinn. Á 20. mínútu náðu Wigan færi með því að kýla boltann fram á framherja sinn, sem tók við boltanum í vítateginum, komst frá Distin, lagði boltann fyrir sig og átti skot sem fór í jörðina og Howard varði vel. Þetta reyndist eina skot Wigan sem rataði á markið í öllum leiknum. Besta færi leiksins kom svo á 40. mínútu þegar Baines stal boltanum af varnarmanni Wigan, brunaði upp kantinn upp að endalínu og gaf boltann glæsilega til baka á Gibson sem kom askvaðandi inn í teiginn en skot hans yfir. Hefði svipað til marksins á móti City ef hann hefði skorað.

Neville kom inn á fyrir Cahill í seinni hálfleik og hann átti aldeilis eftir að setja mark sitt á leikinn. Leikurinn hélt þó áfram á hægaganginum og lítið um færi. Á 60. mínútu kom Jelavic inn á fyrir Stracqualursi (fyrsti leikur Jelavic) en aðeins um korteri síðar (á 76. mínútu) gerðist smá slys þegar Wigan reyndi að senda fyrir, Neville slengir fæti í boltann sem breytir um stefnu í átt að Howard en skoppar rétt fyrir framan Howard og snúningurinn (eða ójafn völlurinn?) veldur því að hann skoppar framhjá Howard sem er að reyna að grípa boltann í markinu. Mistökin eru eignuð Howard en markið skráist sem sjálfsmark á Neville og staðan var þar með orðin 1-0 fyrir Wigan. Frekar óverðskuldað þar sem þeir áttu aðeins eitt skot sem hitti rammann allan leikinn (og ekki skoruðu þeir úr því færinu) og virtust í mestu erfiðleikum með að ná nógu mörgum sendingum til að komast í almennilega sókn. Og það versta við markið var að ef Neville hefði látið boltann fara hefðu tveir Everton leikmenn auðveldlega náð til boltans.

Það lifnaði aðeins yfir Wigan við þetta, skiljanlega, þó að ekki fengu þeir fleiri góð færi. Moses átti skot í olnbogann á Heitinga en dómarinn dæmdi ekkert; hann virtist ekki vita að hægt væri að dæma hendi í leiknum því maður missti töluna á því hvað hann sleppti mörgum slíkum tilvikum þar sem hægt hefði verið að dæma hendi.

Örvæntingin jókst með hverri mínútunni og Moyes ákvað á 81. mínútu að skipta inn Anichebe fyrir Hibbert og blása til sóknar. Og sá átti aldeilis eftir að launa Moyes þá skiptinguna því að mínútu síðar fengum við tvö horn í röð, fyrst vinstra megin en svo hægra megin. Baines tók seinna hornið, sendi fyrir en varnarmaður Wigan skallaði boltann beint til baka til hans. Önnur fyrirgjöf frá Baines, beint á skallann á Anichebe sem þurfti bara að stýra boltanum í netið, eiginlega alveg eins og mark Stracqualursi setti inn í bikarleiknum gegn Fulham á dögunum. Staðan 1-1 og, eins og yfirleitt -- öll mörkin frá varamönnum sem Moyes skiptir inn á og þulirnir hér farnir að tala um Anichebe sem "super-sub". :)

Jöfnunarmarkið kveikti pínulítið í Wigan sem náðu að setja smá pressu á Everton í teignum hjá Howard, reyndu nokkur skot (í sömu sókninni) en komust aldrei framhjá varnarmönnum og maður andaði léttar en er hundfúll með að fá ekki öll þrjú stigin gegn slöku liði Wigan. Ekki hægt að kvarta yfir fimm leikjum í röð án taps þó.

Ef horft er á frammistöðu liðsins myndi ég segja að vörnin hafi staðið sig almennt séð vel og Baines alltaf hættulegur frammi með sendingum sínum. Pienaar gaf okkur nýja vídd frammi en með hann inn á gengur mun betur að senda boltann manna á milli og komast fram hjá mönnum. Ekki að sjá að hann hafi verið frá í nokkurn tíma en hann var einn besti maðurinn á vellinum, ásamt Baines líklega. Fellaini mjög traustur á miðjunni en Gibson hefði mátt afgreiða skotin sín betur. Donovan hefur sýnt betri leik undanfarið en í gær, þó hann hafi verið ágætur. Stracqualursi virkaði ekki nógu vel frammi í þessum leik, fannst mér, þó duglegur sé. Jelavic skapaði smá usla í vítateig Wigan en þeir ætluðu greinilega ekki að gefa honum kost á að láta ljós sitt skína og héldu oft í hann (hann á líklega eftir að fiska þó nokkrar aukaspyrnurnar í framtíðinni). Í eitt skiptið fékk hann aukaspyrnu rétt utan við teig sem Baines hefði mátt gera betur úr (líklega bara láta annan leikmann taka spyrnuna því hún var vinstra megin við markið).

Einkunnir Sky Sports: Howard 4, Baines 7, Distin 7, Heitinga 6, Hibbert 6, Pienaar 8, Fellaini 6, Gibson 5, Donovan 6, Cahill 5, Stracqualursi 6. Varamenn: Neville 6, Jelavic 6, Anichebe 7. Wigan fengu fimmur og sexur á línuna nema Beausejour sem fékk 7.

Share

Wigan vs. Everton

Skrifað af: Brekmundur
Föstudagur, 03. febrúar 2012 16:17

Við eigum leik við Wigan á útivelli á morgun (lau) kl. 15:00. Það verður að segjast að það hefur aldeilis orðið viðsnúningur á viðhorfi stuðningsmanna í kjölfar nýlegra félagaskipta (að ekki sé minnst á hægstæð úrslit í síðustu tveimur leikjum). Félagaskiptaglugginn, sem nýbúið er að loka, var klárlega skemmtilegasti og mest spennandi félagaskiptaglugginn í töluverðan tíma en að auki reyndist þetta einfaldlega einn ánægjulegasti sólarhringur tímabilsins og virkaði einstaklega hvetjandi fyrir framhaldið. Ekki skemmdi náttúrulega fyrir að við toppuðum daginn með því að leggja liðið í efsta sæti sem reyndist 150. sigurleikur Moyes í úrvalsdeildinni en aðeins Ferguson, Wenger og Redknapp hafa náð því sem þjálfarar.

Útlitið virkar því bjart fyrir framhaldið hjá okkar mönnum, en sama er ekki hægt að segja um Wigan sem verma nú neðsta sæti úrvalsdeildarinnar með aðeins 15 stig eftir 23 leiki (við í 10. sæti með 29 stig). Þeir hafa ekki unnið í síðustu 9 leikjum, alveg síðan þeir unnu West Brom 1-2 á útivelli 10. desember, en þeir gerðu tvö jafntefli strax í kjölfarið og hafa síðan tapað 6 af 7 leikjum eftir það (þar af síðustu 5 leikjum í röð). Og ef þið haldið að heimaleikjaformið okkar hafi verið slæmt á tímabilinu þá er það ekkert miðað við Wigan sem hafa ekki unnið heima síðan í ágúst. Við aftur á móti erum taplausir í fjórum leikjum og unnið síðustu tvo.

Við höfum ekki leikið marga leiki gegn Wigan í gegnum tíðina því liðin hafa aðeins mæst 14 sinnum frá upphafi en Everton hefur unnið 8 af þeim leikjum (Wigan aðeins 2). Fyrri leikur liðanna fór 3-1 á Goodison þar sem Jagielka skoraði með skalla eftir að Wigan hafði komist yfir gegn gangi leiksins, og Vellios og Drenthe bættu svo hvor um sig við marki. Wigan hefur aðeins einu sinni í 6 leikjum náð að vinna okkur á eigin heimavelli; Everton hefur aftur á móti unnið helming þeirra leikja (2 jafntefli).

Hjá Wigan eru varnarmaðrinn Alcaraz og sóknarmaðurinn Franco Di Santo líklega meiddir og Hugo Rodallega tekur líklega stöðu þess síðarnefnda. Meiðslalistinn hjá okkur er langur og óbreyttur, að öllum líkindum (Distin, Jagielka, Osman, Rodwell, Seamus) en það verður spennandi að sjá hver uppstillingin verður. Það verður að teljast líklegt að nýju mennirnir fái í mesta lagi (eftir sigurinn á City) að verma bekkinn og koma inn á í síðari hálfleik en ég ætla að skjóta á að Gueye fái séns á vinstri kanti fram yfir Drenthe því mér fannst Gueye virka betur í þarsíðasta leik (Fulham) heldur en Drenthe í þeim síðasta (City). Á móti kemur að ekkert lið gefur jafn margar vítaspyrnur og aukaspyrnur og Wigan, sem er eiginlega ástæða til að velja Drenthe... Svo er spurning hvað verður um Hibbert sem var hreint út sagt stórkostlegur í miðverðinum. Hvað á að gera við svona menn sem brillera gegn efsta liðinu þegar þeir spila ekki stöðuna sína. Fær Hibbert að halda áfram þar eða tekur hann stöðu Neville og Duffy fer í miðvörðinn aftur? Ég held ég leyfi mér að spá: Howard, Baines, Heitinga, Hibbert, Neville, Gueye, Fellaini, Gibson, Donovan, Cahill, Stracqualursi. Count Stracula hlýtur að fá annan séns eftir City leikinn en Saha verður náttúrulega ekki með, enda farinn til Tottenham. Eða eins og einhver orðaði það: The King is dead. Long live the Count! :)

Ég þekkti loks mína menn í leiknum á móti City, sem sýndu góðan baráttuanda og gáfust aldrei upp og uppskáru eftir því. Nú er bara að vona að þetta tímabil endi með stæl eins og það síðasta, helst með góðu gengi í bikarnum að auki.

Share
 

Everton - Manchester City 1-0

Skrifað af: Brekmundur
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 13:58

Uppstilling svipuð og búist var við, nema Drenthe byrjaði inn á fyrir Gueye á vinstri kantinum og Hibbert tók stöðu Duffy í miðverðinum (!). Maður klóraði sér í hausnum yfir því þar sem Duffy hafði staðið sig mjög vel í miðverðinum í síðustu leikjum (og Hibbert er ekki miðvörður). Það kom þó ekki að sök því Hibbert átti fantagóðan leik, besta leik sinn á tímabilinu líklega og var valinn maður leiksins af Sky Sports. Hver segir að það sé skortur á miðvörðum hjá félaginu!? :)

Saha var ekki einu sinni á bekknum, enda kom síðar í ljós að hann er farinn til Tottenham. Stracqualursi byrjaði leikinn frammi, eins og á móti Fulham, enda skoraði hann mark síðast, Donovan á hægri og Gibson og Fellaini á miðjunni sem fyrr. Bekkurinn var unglegri en maður átti von á:  Gueye, Barkley, Vellios, Forshaw, Duffy, Baxter og Mucha.

Það var ekki of mikið um færi í fyrri hálfleik og leikurinn í járnum lengst af, City þó töluvert meira með boltann allan leikinn án þess að skapa of mikinn usla í vörn Everton. Fyrsta almennilega færið í leiknum kom þegar Stracqualursi fékk dauðafæri og skallaði í átt að marki City, boltinn fór framhjá Joe Hart í markinu en Joleon Lescott varði á línu. Hér vildu leikmenn Everton (og stuðningsmenn) fá mark, þar sem boltinn leit út fyrir að hafa farið yfir marklínu, en endursýning sýndi að svo var ekki. Staðan hálft-núll. :) Richards hjá City hljóp síðar inn í teig og átti skot að marki úr þröngu færi hægra megin við markið en Howard varði. Ekkert of hættulegt. Aguero átti skot utan við teig en framhjá marki. Howard líklega tekið það ef það hefði hitt.

Þó nokkru síðar í fyrri hálfleik skallaði Stracqualursi boltann til Fellaini sem átti skot rétt framhjá en tveimur mínútum síðar var Nasri nálægt því að skora en hann átti fast skot að marki langt utan við teig sem fór í slána nálægt samskeytunum hægra megin og niður í jörðina og Howard varði svo skot upp úr frákastinu fra Aguero (sem var reyndar rangstæður). Staðan hálft-hálft. Það hefði verið týpískt að við fengjum á okkur svona "wondergoal" mark á þessum tímapunkti en það gerðist ekki -- í þetta skiptið.

Það helsta annað sem gerðist markvert í fyrri hálfleik var þegar áhorfandi hljóp inn á völlinn og handjárnaði sig við mark City, örugglega til að mótmæla hvalveiðum. ;) Leikurinn hafði verið nokkuð fjörugur þangað til, og því voru áhorfendur ekki sáttir við að það tæki heilar 5 mínútur að losa hann af markinu til að leikurinn gæti haldið áfram og púuðu duglega.

Í hálfleik gekk Jelavic, nýi sóknarmaðurinn okkar, inn á völlinn og var vel fagnað. Hann hélt á treyju sem var árituð með nafni hans en ekki er ljóst hvaða númer hann fær (ætli hann fái ekki gamla númerið hans Bily?). Hægt er að sjá viðtalið við hann hér.

City byrjaði seinni hálfleikinn með frekari tilraunum til að brjóta vörnina á bak aftur en tókst ekki almennilega. Nasri átti skot sem fór af varnarmanni í horn, Lescott í færi braut á Howard (inni í innsta markteig) og sending fyrir markið frá vinstri kanti hitti Nasri fyrir en hann gat ekki stjórnað boltanum. Fellaini tæklaði boltann fallega af Aguero inni í teig sem datt við og heimtaði víti. Dómarinn sagði "Enga vitleysu" og Match of the Day sagði í greiningu sinni eftir leikinn að það hafi verið rétt ákvörðun hjá dómaranum. 

Í seinni hálfleik var það markverðast að Fellaini vinnur boltann glæsilega á miðjunni með vel tímasettri tæklingu, Drenthe nær boltanum og kemst framhjá einum City manni, brunar í átt að marki og sendir boltann á Baines á vinstri kanti sem sendir fyrir á Donovan (Stracqualursi framlengdi sendinguna með skalla) á fjærstöng. Donovan hættir við að skjóta og sendir boltann til baka á Gibson sem var utarlega í teignum aðeins til hægri við mitt markið og átti gott skot sem breytti um stefnu af Gareth Barry og framhjá Joe Hart í markinu. Staðan 1-0 á 60. mínútu og stemmingin á pöllunum alveg brjáluð! Manchini að verða sýnilega pirraðari og pirraðari. Athygli vekur jafnframt að Donovan er nú búinn að eiga síðustu þrjár stoðsendingar í röð sem gefa mark (ef ekki meira).

Nasri reyndi að svara og var næstum því heppinn úr þröngu færi alveg við endalínu og reyndi að vippa yfir Howard en boltinn fór yfir markið (ofanverða slána). Engin hætta, Howard með'ann allan tímann.

Gibson átti annað skot nokkru síðar langt utan við teig, en ekkert varð úr því (fór vinstra megin við markið). Stracqualursi gerði vel þó í að berjast um boltann í aðdragandanum og skapa færið.

Þegar um 20 mínútur voru eftir vildu City menn fá vítaspyrnu þegar City maður skaut beint í hendina á Phil Neville, en dómarinn lét sér fátt um finnast. Í greiningunni eftir leikinn kom í ljós að þeir áttu líklega að fá víti, en það fellur ekki allt með manni í dómgæslunni, frekar en í fyrri leik liðanna þar sem Kompany átti að fá rautt fyrir að traðka á Cahill (en slapp við það).

Leikurinn rann svo sitt skeið á enda og við fengum ekki skot á markið okkar að ég held síðustu 15 mínúturnar og því flottur 1-0 sigur í höfn á liðinu í efsta sæti, sigur sem Moyes sagði að væri einn sá sætasti síðan hann tók við stjórnvölnum hjá Everton. 

Ég var ánægður með mína menn sem börðust eins og ljón og voru mjög hungraðir í sigur. Frábær stemming á vellinum líka, sem hefur örugglega hjálpað til og vonandi að þessir tveir síðustu leikir gefi tóninn fyrir restina af tímabilinu. 

Moyes sagði jafnframt nýlega að sigrar breyttu algerlega viðhorfi manna innan og utan vallar og það er nokkuð til í því. Það hjálpar þó enn frekar til að maður sér liðið spila sem heild og lætur boltann ganga vel manna á milli. Helst að maður vildi sjá færri kýlingar fram völlinn (gekk mun betur þegar við reyndum að spila) og Drenthe hefði mátt leika aðeins betur en hann virðist eiginlega versna með hverjum leiknum sem líður, farinn að fremja klaufaleg og oft gjörsamlega ónauðsynleg brot og reynir of mikið að komast framhjá mönnum þegar einfaldara er að senda boltann á fría menn. Hann má þó eiga það, hann Drenthe, að þrátt fyrir gallana þá átti hann þátt í sigurmarkinu. Stracqualursi, sem byrjaði á sama tíma og Drenthe hefur vaxið með hverjum leiknum sem líður og var óþreytandi í baráttu sinni um allan völlinn og náði oft að fipa varnarmenn City með pressunni.

Einkunnir Sky Sports: Howard 7, Hibbert 9, Heitinga 8, Baines 7, Neville 7, Drenthe 7, Fellaini 7, Gibson 8, Donovan 8, Cahill 7, Strac 8. Varamenn: Baxter 6, Vellios 6. City menn fengu 6 á línuna, nema Kompany, Richards, Silva og Nasri, sem fengu 7.

Share

Pienaar kominn aftur (að láni)

Skrifað af: Brekmundur
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 00:18

Það hefur verið í nógu að snúast í janúarglugganum þetta árið og aftur snýst þetta um félagaskipti milli Everton og Tottenham en nýjustu fregnir herma að Everton hafi fengið Pienaar aftur til sín, í þetta skipti að láni út tímabilið. Kannski er þetta eins konar kaupleigusamningur eða kannski bara tækifæri fyrir Pienaar að ná leikæfingu eftir meiðsli sem hafa háð honum hjá Tottenham. Hver veit. Skiptir ekki öllu, Pienaar verður með okkur næstu mánuðina og bjóðum við hann velkominn aftur.

Þar sem félagaskiptaglugganum hefur verið lokað er ekki líklegt að fleiri skipti verði tilkynnt og því má ganga að því vísu að Kostas Manolas sé ekki á leiðinni til okkar í bráð.

Skemmtilegur janúar-félagaskiptagluggi, annars, svo ekki sé meira sagt -- annað en sá síðasti.

Share
 

Síða 1 af 68

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Everton.is á Facebook