Skrifað af: Brekmundur Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 00:18
Það hefur verið í nógu að snúast í janúarglugganum þetta árið og aftur snýst þetta um félagaskipti milli Everton og Tottenham en nýjustu fregnir herma að Everton hafi fengið Pienaar aftur til sín, í þetta skipti að láni út tímabilið. Kannski er þetta eins konar kaupleigusamningur eða kannski bara tækifæri fyrir Pienaar að ná leikæfingu eftir meiðsli sem hafa háð honum hjá Tottenham. Hver veit. Skiptir ekki öllu, Pienaar verður með okkur næstu mánuðina og bjóðum við hann velkominn aftur.
Þar sem félagaskiptaglugganum hefur verið lokað er ekki líklegt að fleiri skipti verði tilkynnt og því má ganga að því vísu að Kostas Manolas sé ekki á leiðinni til okkar í bráð.
Skemmtilegur janúar-félagaskiptagluggi, annars, svo ekki sé meira sagt -- annað en sá síðasti.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Það verður forvitnilegt aðs já hvort Pienaar og Baines smelli saman eins og þeir gerðu en ég vil þó sjá enn meira af Drenthe þar sem hann hefur ekki náð nógu mörgum leikjum í röð til að ná spil formi.
Flott kaup í janúarglugganum í Gibson og Jevlavic og skammtíma-lánið á Donovan hefur gengið frábærlaga og Pienaar er fín viðbót til vors.
Þess má geta að Donovan er kominn með 5 stoðsendingar sem er all svakalea gott og væri ég meira en til í að fá kappann fast til okkar, reyndar sem og Drenthe og Stracqualursi sem báðir eru mjög áhugaverðir kostir, Drenthe er viltur og hraður og Stracqualursi er svakalega sterkur og mikill vinnuhestur og gefa Everton aðra vídd.
Flottir leikirir gegn Fulham og Man. City og spurning hvort liðið sé komið á beinu brautina eins og oft gerist á seinni hluta tímabils.